Um FÍE

Hægt er að senda stjórn FÍE tölvupóst á netfangið aopa@aopa.is

Stjórn FÍE er skiðuð eftirfarandi :
Valur Stefánsson        formaður
Guðmundur Kr. Unnsteinsson    
Jóhann Gunnarsson                  
Valdimar Einarsson                    
Dagbjartur Einarsson                
Otto Tynes
Ragnheiður Sigurðardóttir
Haraldur Diego

Félag Íslenskra Einkaflugmanna vinnur að hagsmunum einkaflugmanna og flugvélaeigenda.  Félagið er í nánu samstarfi við IAOPA í Evrópu og er skilgreint sem eitt að AOPA löndunum og greiðir sitt aðildargjald.

Á undanförnum mánuðum hefur farið mjög mikil vinna í svokölluð Part-M regluger sem helltist yfir okkur á þessu ári og mjög svo íþyngjandi fyrir grasrótina, félagið hefur lagt mikla áherslu bæði við Innanríkisráðuneytið og Flugmálastjórn að breytinga sé þörf annars séum við að horfa á eftir síðasta móikananum í einkafluginu á Íslandi og það má alls ekki.   Við höfum ekki verið ein að berjast á þessum vígstöðvum því AOPA löndin í kringum okkur hafa verið í sömu skotgröfunum.

Til þess að halda starfi FÍE / AOPA Íslandi gangandi þá þurfa félagsmenn að greiða árgjald sitt að félaginu, það eru margir að vinna mikla sjálfboðavinnu fyrir einkaflugmenn og flugvélaeigendur. 

Kæri flugmaður og eða flugvélaeigandi ef þú vilt ganga í félagið þá vinsamlegast sendu okkur tölvupóst á netfangið aopa@aopa.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, heimilisfang og GSM númer.  Einnig er hægt að sækja um inngöngu í félagið með því að smella hér.

Frjáls framlög                                                                                                                         Þeir sem vilja styðja við bakið á félaginu með fjárframlögum þá vinsamlegast leggið inn á reikning félagsins í Arionbanka 0338-26-301802 kt: 551183-0769