Flugmenn
Hér er gróf lýsing á því hvernig einkaflugmannsnámið gengur fyrir sig.
Náminu má skipta í tvo hluta a) bóklegt og b) verklegt.
Bóklegt:
Bóklegi hlutinn fyrir einkaflugmannsprófið er yfirleitt tekinn á 3. - 4. mánaða kvöldnámskeiði sem oftast er haldið frá kl. 19 - 22. Einnig geta flugnemar setið bóklegt sumarnámskeið og einnig hefur verið boðið upp á bóklegt fjarnám.
Lágmarkseinkunn er 7,5 í öllum fögum og þarf að standast próf hjá flugskóla svo hægt sé að fara í próf hjá Flugmálastjórn.
Fögin í bóklega hlutanum eru eftirfarandi:
- veðurfræði
- afkastageta og áætlunargerð
- vélfræði
- flugeðlisfræði
- fjarskipti
- flugreglur
- mannleg geta og takmörk
- verklagsreglur
Verklegt:
Verklegi hluti námsins saman stendur af lágmark 45 klst og þar af:
- Lágmark 12 tímar með kennara áður en nemandi fer í sitt fyrsta sóló (einflug). Þó er algengt 15-25 klst.
- Lágmark 10 tímar sóló (nemandi flýgur einn) og þar af 5 tímar í yfirlandsflugi.
- Flugneminn lærir að gera fyrirflugsskoðun, þyngdarútreikninga og flugplan fyrir hvert flug.
- Í fyrstu flugtímunum er algengt að 10-20 mínútna töflukennsla fari fram þar sem flugið er rætt og hvaða æfingar verði framkvæmdar og æfðar í fluginu.
- Að loknu flugi fara nemandi og kennarinn yfir flugið, hvað gekk vel og hvað hefði mátt betur fara.
Hér eru nokkrar af helstu æfingunum í verklegu einkaflugmannsnámi.
Undirbúningur fyrir flug:
Þekking á flugvélinni
Upphaf spuna
Hleðasla og jafnvægi
Beygjur í lækkun
Fyrirflugsskoðun
Lækkun með og án afls
Gangsetning flugvélar
Flugvél rétt af eftir lækkun
Akstur flugvélar
Koma að flugvelli / leiðir
Flugtök og lendingar
Neyðarviðbrögð
Venjuleg flugtök
Líkt eftir hreyfilbilun við flugtak
Hliðarvindaflugtök
Nauðlending / Neyðarviðbrögð
Stuttbrautarflugtök án hindurnar
Varúðarlending / bilanir
Mjúkbrautarflugtök m/hindurn
Aðflug og lending án afls
Mjúkbrautarflugtök án/hindrunar
Missir fjarskiptasambands
Brottflug frá flugvelli
Ljósmerki
Flugleiðsaga
Stefnur og tímataka (ETA)
Kortalestur VOR / ADF
Breytt um ákvörðunarstað
Flugæfingar
Aðflug og lendingar
Klifur (Vx - Vy)
Hliðarskrið
Klifurbeygjur
Framskrið
Umferðarhringur
Fráhvarfsflug úr lágri hæð
Flugvél rétt af eftir klifur
Skipt um flugbraut
Beint og lárétt flug / hraðabeygjur
Nákvæmnislendingar (spot)
Meðalkrappar (30gr) beygjur
Stuttbrautarlendingar m/hindrun
Krappar (45gr+) beygjur
Stuttbrautarlendingar án hindrunar
Hægflug / með og án flapa
Mjúkbrautarlendingar m/hindrun
Drægi og flugþol
Mjúkbrautarlendingar án hindrunar
Flug á hættulega lágum hraða (MCA)
Lendingar án flapa
Ofris, endurheimting án afsl
Snertilendingar
Ofris, endurheimting m/afli
Viðbrögð við skoppi
Byrjunarofris í lendingarham
Hliðarvindslendingar
Ofris með afli
Venjulegar lendingar
Vængjavagg
Notkun talstöðvar
Gormadýfa (Spíral)
Aðgerðir eftir flug / frágangur
Óeðlileg afstaða
Að lokum:
Þegar flugneminn hefur lokið öllum hlutum verklegs og bóklegs náms auk þess sem kennarinn og flugskólinn meta hann hæfan þá er farið í verklegt lokapróf á vegum Flgumálastjórnar.
Flugskólar sem kenna til einkaflugmanns:
Flugfélagið Geirfugl www.geirgufl.is
Flugakademían Keilir www.keilir.net/flugakademian
Flugskóli Íslands www.tskoli.is/flugskoli-islands/
Flugskóli Akureyrar
Flugskóli Helga Jónssonar www.flugskolinn.is
Að viðhalda skírteini:
Til að byrja með gildir einkaflugmannsskírteinið í 2 ár og svo í 5 ár eftir fyrstu endurnýjun. Eins hreyfils bulluhreyflaáritun (SEP) gildir svo í tvö ár. Til að viðhalda SEP árituninni þarf nemandi að fljúga 12 tíma á seinna árinu og fara í eitt flug með flugkennara eða annað prófflug (t.d flughermir hjá atvinnuflugmönnum).
Ef 12 tímarnir hafa ekki verið flognir á seinna árinu eða ekki hefur verið farið í flug með kennara þarf að fara í flug með prófdómara frá Flugmálastjórn (svokallað PFT). Þetta flug er ekki jafn viðamikið og verklega lokaprófið fyrir einkaflugmanninn.
Að endurnýja skírteini
Ef einkaflugmaður hefur ekkert flogið í allt að 3 ár dugir flug (PFT) með prófdómara.
Ef einkaflugmaður hefur ekki flogið í meira en 3 ár en skemur en 5 ár þarf að taka próf í flugreglum ásamt prófi (PFT) með prófdómara.
Ef einkaflugmaður hefur ekkert flogið í 5 ár en skemur en 7 ár þarf að taka próf í flugreglum og heilbrigðisfræði ásamt prófi (PFT) með prófdómara.
Hafi einkaflugmaður ekkert flogið í meira en 7 ár þarf að taka öll bókleg próf aftur ásamt prófi (PFT) með prófdómara.
Hins vegar dugir upprifjunarnámskeið og próf hjá flugskólum en nemandi þarf þá að sýna Flugmálastjórn fram á að hann hafi setið upprifjunarnámskeið hjá tilteknum skóla og þreytt tiltekið/n próf.
Ef flugmenn eru með CPL (atvinnuflugmannsskírteini) þarf ekki að taka nein bókleg próf en fara þarf í PFT.