Færslur: 2012 Febrúar

26.02.2012 15:54

Upprifjunarnámskeið

Í anda upprifjunar með Otto Tynes verður í félagsheimili FÍE laugardaginn 3. mars og hefst kl. 13:30.  Otto segi að upprifjunin verði með svipuðu sniði og gerðist hér á árum áður, lært af mistökum   
"I learned from that"   einnig verður farið í fyrstu hjálp og skoðað hvað er í sjúkrakassanum. 

Þar sem kennslustofan okkar hefur ekki endalaust pláss þá óskum við eftir að áhugasamir tilkynni þáttöku sína með tölvupósti á netfangið aopa@aopa.is  frítt er fyrir skuldlausa félagsmenn en kr. 1.000 fyrir aðra. 

Munið skráninguna aopa@aopa.is


13.02.2012 19:37

GA Magazine

Nú í vikunni ættu skuldlausir félagsmenn að fá bæði desember og febrúar blöðin af GA Magazine inn um lúguna hjá sér, ástæðan fyrir af hverju desember blaðið kemur svo seint er vegna þess að það týndist í pósti.  Blöðin eru stútfull af góðu lesefni en þverskurðurinn er eins og við höfum séð hér heima þ.e.a.s. EASA Part-M sem er greinilega ekki besti vinur grasrótarinnar. 




  • 1