08.09.2011 14:12
Flugsýning FMÍ á Reykjavíkurflugvelli 10. sept
Flugsýning Flugmálafélags Íslands í samstarfi við Ísavía og Icelandair verður haldin á Reykjavíkurflugvelli, 10. September kl. 12-16 við Hótel Loftleiðir (Hótel Natúra).
· Flugvélar af öllum stærðum og gerðum
· Flugsýning kl. 13-15
· Fallhlífarstökk
· Svifflug
· Sýningarflug á Þristinum
· Módelflug
· Farþegaþota Icelandair Boeing 757, lending, flugtak og yfirflug.
· Listflug
· Þyrluflug
· Paramótorflug
· Fisflug
· Sýningarflug Landhelgisgæslunnar.
Aðgangur ópeypis.
Komið og upplifið Íslenska flugævintýrið á Reykjavíkurflugvelli.
05.09.2011 10:37
Verð á 100LL hjá Olís
Í morgun fengum við eftirtalin verð staðfest frá Olís á 100LL avgas.
| Staður | Verð pr. ltr |
| Landið | 290,30 |
| Vestmannaeyjar | 305,30 |
| Reykjavík af bíl | 285,30 |
| Reykjavík sjálfsafgreiðsla af dælu | 282,30 |
04.09.2011 14:33
Hækkun á flugvélaeldsneyti
Skeljungur hefur tilkynnt um hækkun á 100LL flugvélaeldsneyti þann 1. sept. s.l. Hækkunin nú er 14 kr. og væri nú gaman að heyra frá þeim Skeljungsmönnum hvaða forsendur liggja að baki þessari hækkun.
Hér fyrir neðan má sjá verðskránna frá Skeljungi eins og hún lítur út frá 1. september.
| Staður | 100 LL | Jet A-1 |
| Reykjavíkurflugvöllur | 291,79 | 202,59 |
| Ísafjörður | 309,93 | 226,78 |
| Akureyri | 303,89 | 214,68 |
| Egilstaðir | 309,93 | 226,78 |
| Höfn | 315,98 | 226,78 |
| Keflavík | 309,93 | 202,59 |
12.08.2011 17:36
Myndir frá Flugkomu einkaflugmanna í Múlakoti

28.06.2011 12:19
PART-FCL og þjóðarskírteini
Þeir sem verða með PPL þjóðarskírteini við gildistökuna þurfa að breyta þeim í PART-FCL PPL skírteini.
Miðað við að þau drög sem nú eru á borðinu breytist ekki munu handhafar PPL þjóðarskírteina a.m.k. þurfa að sýna fram á þekkingu sína á nýju reglugerðinni ásamt því að sýna fram á kunnáttu sína í notkun flugleiðsögutækja. Einnig er krafa um að menn hafi amk 70 tíma.
Það gefur að skilja að auðveldara verður fyrir menn að umbreyta þjóðarskírteininu sínu fyrst í JAA skírteini og hvetur FÍE því alla einkaflugmenn sem hafa þjóðarskírteini til að gera það hið snarasta.
27.06.2011 16:49
Árgjald FÍE / AOPA
Verið er að senda út greiðsluseðla FÍE fyrir fyrrihluta félagsgjalda ársins 2011 en seðlarnir ættu að vera sýnilegir á heimabanka félagsmanna nú þegar. Nokkrir félagsmenn hafa þegar greitt í gegnum heimabankann sinn og viljum við hvetja félagsmenn að gera skil hið fyrsta.
Stjórn FÍE
27.06.2011 16:41
GA Magasine
IAOPA hefur gefið út júní tölublaðið af GA Magasine (General Aviation) og er m.a. pistill frá Martin Robinson v-forseta IAOPA um Íslands ferð hans. Hægt er að lesa blaðið á netinu á eftirfarandi slóða: http://www.iaopa.eu/contentServlet/jun11.htm
Pistill Martins "A little piece of flying heaven" er hægt að lesa á þessum slóða: http://www.iaopa.eu/mediaServlet/storage/gamag/jun11/p17.pdf
Stjórn FÍE er vinna í því að fá blaðið til að senda félagsmönnum sínum og vonandi getur það orðið fljótlega.
Stjórn FÍE / AOPA Ísland
27.05.2011 00:26
Undanþága - Lofthæfisstaðfestingarvottorðs
Undanþága - Lofthæfistaðfestingarvottorð
26.5.2011Flugmálastjórn Íslands hefur gefið út undanþágu (ICAA Exemption E 003/2011) er tekur til einfaldra flugvéla, svifflugna og mótorsvifflugna á bilinu 1000 til 1200 kg, sem eru ekki notuð í atvinnuskyni, falli undir sömu meðferð og ELA1 geri með hliðsjón af Parti M.
Sjá nánar á heimasíðu Flugmálastjórnar:
http://caa.is/media/PDF/ICAA_Exemption_E003_2011pdf.pdf
Þessar breytingar ná til véla sem voru á milli 1.000 og 1.200kg. og eiga við véla allt að 1.200 kg.
Er þetta einn af þeim liðum sem Félag Íslenskra Einkaflugmanna lagði til við Flugmálastjórn til að liðka til fyrir einkafluginu og til þess að sporna við því að grasrótin legðist af. Vonumst við nú til þess að einkavélar sjáist í auknum mæli í loftinu í sumar.
- 1
- 2