06.12.2011 13:08
Á flugmálastjóri ekki að upplýsa flugráð betur?
Í dag 5. desember áttu fulltrúar Flugmálafélags Íslands góðan fund með Flugráði. Vonumst við til þess að Flugráð sjái nú vel þann alvarleika sem grasrótin hefur staðið frammi fyrir frá því svokölluð Part-M reglugerð var innleidd. En eftir þennan ágæta fund þá fór undirritaður að lesa yfir fundargerð Flugráðs frá því í júní (fundargerð nr. 1561) og hnaut þá um kynningu sem flugmálastjóri hélt fyrir Flugráði vegna vinnuhóps sem þá verandi Innanríkisráðherra Kristján Möller skipaði en undirritaður sat fyrir hönd Flugmálafélagsins í þeim hópi. Hér á eftir fer ég yfir skrif flugmálastjóra og einnig tek ég upp punkta úr fundargerðum vinnuhópsins og svar bréfs Utanríkisráðuneytisins.
Á 1561. fundi Flugráðs var fjallað um viðhaldsstjórnun lítilla flugvéla. Flugmálastjóri greindi frá innleiðingu Part-M reglugerðarinnar (2042/2003 (EB1592/2002)) og tók m.a. fram að reglugerðin hefði verið bindandi fyrir Ísland og ekki hjá því komist að innleiða hana. Einnig vakti hann athygli á því að FMS hefði veitt undanþágu um tiltekin loftför á bilinu 1.000 kg. til 1.200 kg. á grundvelli þess að tillaga liggur fyrir frá EASA til framkv.stjórnar ESB um slíka breytingu. Þess skal getið hér að forsvarsmenn Flugmálafélagsins voru þá búnir að fara formlega fram á að FMS beitti sér til þess að fá þessa undanþágu og er það mjög jákvætt að FMS hafi fengið þetta í gegn sem varð til þess að að margar einkavélar gátu flogið í sumar sem annars hefði ekki orðið.
Einnig var rætt um vinnuhóp sem skipaður var af Innanríkisráðherra en hópurinn átti að fara yfir forsendur reglugerðarinnar með það í huga hvort Ísland gæti hugsanlega sótt um undanþágu og þar með komist hjá að innleiða hana. Í fundargerð Flugráðs stendur orð rétt:
"Í stuttu máli var niðurstaða vinnuhópsins, eftir ítarlega yfirferð og með aðkomu utanríkisráðuneytisins, sú að ekki væri hjá því komist að innleiða reglugerðina án undanþágu.
Formaður þakkar yfirferðina sem gefur ágætt yfirlit yfir stöðu og horfur. Áhersla verði lögð á aðstoð almannaflugið við aðlögun að nýjum reglum og starfsumhverfi eins og aðstæður frekast leyfa."
Mig langar í tilefni ofangreindrar bókunar í fundargerð að rifja lítillega upp niðurstöður úr þeim skjölum vinnuhópsins sem ég hef við hendina sem mér finnst fulltrúar Flugmálastjórnar og Innanríkisráðuneytisins ekki hafa komið vel frá sér til Flugráðs.
1. Bréf frá Utanríkisráðuneytinu vegna fyrirspurnar vinnuhópsins. (10.02.11. UTN11010301/89.C.340)
Í síðustu málsgrein bréfsins stendur "Í öðru lagi vill ráðuneytið vekja athygli á því að í 14. Gr. Reglugerðar 216/2008 er að finna ákvæði sem heimila ákveðinn sveigjanleika við beitingu ákvæða reglugerðarinar. Í 6. tölul. Þeirrar greinar er heimilað að veita heimildir á grundvelli annars konar reglna en þeirra sem kveðið er á um í reglugerðinni, enda sé tryggt að sambærilegt flugöryggi og felst í ákvæðum reglugerðarinnar. Slíkt kerfi er þó háð fyrirfram samþykki, sbr. Nánar ákvæði greinarinnar. Að mati ráðuneytisins kæmi til athugunar flugmálayfirvalda hvort æskilegt og unnt væri að setja slíkar reglur hér á landi."
2. Niðurstaða vinnuhóps vegna innleiðingar reglna um rekstur og viðhald einkaloftfara dags. 15.04.2011.
"Niðurstaða vegna áhrifa Evrópureglugerðanna og tillögur til ráðherra.
Umræddar reglur hafa verið innleiddar á öllu EES-svæðinu. Á fundum hópsins hefur komið fram bæði frá fulltrúum Flugmálafélagsins og frá fulltrúa Flugmálastjórnar að töluverð óánægja er með reglurnar á svæðinu. Meðal annars hefur verið bent á að þyngdarmörk hvað varðar skilgreiningu á léttum löftförum (ELA1) séu óþarflega lág. Leiðir slíkt til þess að sömu kröfur eru gerðar til loftfara sem eru rétt fyrir ofan ELA1 í þyngd, en þau eru algeng loftför í enkaflugi, og loftfara sem eru mun þyngri. Hefur óánægjan með reglurnar nú þegar leitt til þess að upp er komin umræða innan Flugöryggisstofnunar Evrópu um breytingu á reglunum m.a. að þyngdarmörk ELA1 verði færð úr undi 1000kg í undir 1200kg. flugtaksmassa, en mat hópsins er að þessi þyngdarmörk þurfi að vera nokkuð hærri til þess að algengar eins og tveggja hreyfla flugvélar rúmist innan hennar jafnvel upp að 2.730kg. flugtaksmassa.
Niðurstaða vinnuhópsins er því sú að áhrif ofangreindra Evrópureglugerða hafi íþyngjandi áhrif á einkaflug hér á landi sem og annars staðar í Evrópu. Hópurinn telur mikilvægt að reglunum verði breytt og leggur því til við ráðherra að hann ásamt Flugmálastjórn Íslands beiti sér fyrir því á vettvangi Flugöryggisstofnunar Evrópu og eftir því sem mögulegt er innan Evrópusambandsins að reglum er snúa að rekstri og viðhaldi einkaloftfara verði breytt þannið að íþyngjandi áhrif þeirra minnki."
Það vekur nokkurra furðu að svo virðist sem flugmálastjóri hafi ekki greint Flugráði efnislega frá ofangreindri niðurstöðu vinnuhópsins né frá svari Utanríkisráðuneytisins. Er það mat undirritaðs að sú efnislega niðurstaða sem sett er fram í fundargerð Flugráðs samrýmist ekki niðurstöðum vinnuhópsins að meginstefnu sinni og er það afar bagalegt að í opinberum gögnum skuli vera að finna yfirlýsingar sem eru í ósamræmi við þau gögn sem eiga að liggja þeim til grundvallar.
Valur Stefánsson
Formaður FÍE og ritari FMÍ.