30.10.2011 13:59

125 RM IAOPA

125RM fundur IAOPA í Evrópu.

Haldinn í Krakow Póllandi 1. Október 2011.

Hér á eftir er pistill formanns FÍE frá Evrópufundi AOPA sem fram fór í Póllandi 1. Október s.l.

Undirritaður sótti Evrópufund AOPA (125RM IAOPA) sem fram fór í Krakow í Póllandi 1. Október s.l.  Því miður höfum við ekki haft bolmagn í að senda fulltrúa á þessa fundi áður en við höfum séð það og sérstaklega vegna innleiðingar Part-M reglnanna frá EASA (Flugöryggisstofnun Evrópu) þá er það orðið nauðsynlegt fyrir okkur að efla samskiptin við AOPA félögin þar sem þau eru að berjast fyrir nákvæmlega sömu hlutunum og við hér upp á Íslandi. 

Fulltrúar voru frá eftirtöldum löndum: Bretland, Þýskaland, Frakkland, Danmörk, Svíþjóð, Holland, Pólland, Ítalía, Grikkland, Noregur, Sviss, Rússland, Líbanon, Austurríki, Ukraína og gestir frá Bandaríkjunum.

Martin Robinson v-forseti IAOPA opnaði fundinn og ræddi mikið hve íþyngjandi EASA reglugerðin væri og svo ég noti hans orð "people find their way around the rules if te rules are to tight.  That is not SAFETY.  Þetta eru orð að sönnu og spunnust miklar umræður um þetta málefni og voru fundarmenn sammála því að EASA væri að slaka á klónum en því miður er þetta eins og með stærðar olíuskip það er svo erfitt að snúa því. 

Stórar áhyggjur eru í Evrópu hve miklar og þungar kröfur um blindflug í Evrópu sem fælir einkaflugmenn frá því að taka blindflugspróf.   Voru fundarmenn sammála því að það yrði að létta á því að einkaflugmenn gætu aflað sér blindflugsáritunnar sem væri bara öryggisþáttur.

Það kom mér ekki á óvart að mesti tíminn fór í EASA Part-M umræður og erum við hér á Íslandi ekki  ein  um að eiga í vandræðum með þennan reglugerðar pakka.   Það kom verulega á óvart að aðeins voru sendar inn athugasemdir til EASA vegna Part-M frá fjórum aðildarfélögum AOPA m.a. kom frá okkur hér á Íslandi en þegar farið var að kafa ofan í kjölinn þá höfðu fleiri lönd gert tilraun til að senda inn en tölvupóstfangið hafði verið rangt, rétt netfang kom fram á fundinum og ætluðu þá fleiri að senda strax.

Peggy van Ootmarsum gjaldkeri gerði grein fyrir stöðu Evrópusamtakanna og eru þau viðunandi þó svo að greiðslur hefðu ekki borist frá nokkrum löndum.

Hátt bensínverð var gert að umræðuefni og eru í öllum löndum fjölgandi þeim sem nota bílabensín.

Jacob Pedersen frá Danmörku sagði að heimsóknir á heimasíðuna færu fjölgandi og alltaf væri að aukast þeim sem fengju sent í tölvupósti e-Newsletter og viljum við hvetja ykkur kæru félagsmenn til að gerast áskrifandi af því en það kostar ekkert.

Einnig sagði Jacob frá því að Flugmálastjórn Danmerkur og ráðuneyti flugmála hefði kallað grasrótina til vinnu við að yfirfara ferla og reglur, þetta mætti bæði Innanríkisráðuneytið okkar og Flugmálastjórn Íslands taka til athugunar.

Ég fékk góðan tíma til að kynna hvað við höfum verið að gera og hverju við höfum helst verið að berjast fyrir.  Fundarmenn áttu ekki til orð þegar ég sýndi þeim hluta úr nýjum drögum frá Innanríkisráðuneytinu um hertari reglur gagnvart flugvélum skráðum í þriðja ríkinu þ.e.a.s. í löndum utan EES svæðisins.  Sagði danski fulltrúinn að sennilega væri þetta ákvæði á útleið í Svíþjóð og umræður hafa einnig verið í Danmörku og spurði hvers vegna Ísland ætlaði þá að fara innleiða þetta. 

Eftir þennan fund teljum við að mjög góð samskipti séu komin á við önnur AOPA  félög sérstaklega þau sem standa okkur næst og án efa á þetta samstarf eftir að hjálpa okkur í baráttunni við að halda grasrótinni á flugi.

Í myndaalbúminu okkar má sjá nokkrar myndir frá fundinum ásamt myndum frá Flugsafninu í Krakow sem er einkar áhugavert.

Bestu kveðjur

Valur St.