18.09.2011 16:48

Líftími aukahluta

TBO on components
EASA opnaði s.l. föstudag fyrir ábendingar vegna fyrirhugaðrar breytingar á reglugerð vegna líftíma aukahluta.  FÍE ásamt Flugmálafélaginu hafa barist fyrir því að fá þessar breytingar í gegn og formlega var óskað eftir því við FMS s.l. vor að líftími aukahluta myndi fylgja líftíma mótora sem var þá breytt m.a. eftir beiðni FÍE og FMÍ.  Í tilkynningu EASA er minnst á að óskir um breytingar hafi komið frá nokkrum löndum og m.a. Íslandi þannig að við sjáum að það er hlustað á Íslensku grasrótina þarna úti og er það vel. 

Án efa verður þetta mikill sparnaður fyrir félagsmenn okkar og sýnir enn og aftur samtaka mátt okkar.

Hægt er að sjá greinina frá EASA á þessari slóð hér.